Góðan daginn

31. júlí 2010

sæl öll, nú er komin laugardagur um verslunarmannahelgi, allt rólegt á tjaldsvæðinu og ennþá nóg pláss fyrir þá sem vilja eyða helginni í rólegheitum með okkur hérna í Víðidalnum...
Blanka logn og þoka í grennd, mér sýnist að hann sé að glaðna til og vona að sólin fari að koma í gegn um slæðuna.
kær kveðja úr Víðidalnum
Sigrún

Góða veðrið

28. júlí 2010

Komiði nú sæl og blessuð, hér er nú aldeilis búin að vera bongó blíða, aðeins að það tók að kula í fyrradag, í dag er búin að vera norðan andvari og sólskin,
síðasta helgi var aldeilis frábær hérna á tjaldsvæðinu fullt af fjölskyldufólki sem virti allar reglur um hvenær skal orðið hljótt, og annað aldeilis frábærir gestir, ég vil hafa SVONA gesti allar helgar...

Jæja nú nálgast verslunarmannahelgin engir stórir hópar hafa boðað komu sína það er eins og alltaf allir velkomnir sem eru tilbúnir að virða þær reglur sem við setjum , ekkert að því að spjalla saman
en almenn ölvun og skrílslæti eru alsendis óviðunandi hér ,þeir sem stefna á þannig útilegu fara eitthvaða annað takk fyrir

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest
kveðja úr Víðidalnum
Sigrún og Villi

Góðan daginn

18. júlí 2010

Sæl öll, nú virðirst loksins vera aðeins að glaðna til og hitin á uppleið, reyndar er þoka í grend en manni virðist hann ætla að rífa hana af sér, nú er hitin 15 gráður og svo til logn og þurrt. Hér var eitthvað á annað hundrað manns á tjaldsvæðinu um helgina og gekk allt stórslysalaust, bara hresst og skemmtilegt fólk víðsvegar af landinu,Vestmanneyjum, Ólafsvík,Dalvík, Blönduósi, Reykjavík og víðar. Reyndar voru hér því miður einhverjir sem ekki virtu þær reglur sem gilda um umgengni og hávaða þessa helgina, reyktu innanhúss og fl. Við erum að gera út á fjölskylduvænt tjaldsvæði þannig að við óskum eftir að gestir okkar virði þær reglur sem gilda hér
Einnig set ég spurningamerki við er að stundum virðist eins og blesssuð börnin gleymist þau eru á ferðinni hlaupandi og hrópandi langt fram á nótt

Sól sól

15. júlí 2010

Góðan daginn , hér er glampandi sól og fallegt veður,
þó nokkuð af fólki komið sem ætlar að dvelja fram yfir helgi, lítur út fyrir líflega helgi hjá okkur, en eins og venjulega er nóg pláss fyrir skemmtilegt fólk sem vil hafa það gott í RÓLEGU umhverfi...
Hlakka til að sjá ykkur
kveðja úr Víðidalnum Sigrún

2.júlí 2010

2. júlí 2010

Góðan daginn, hér er hit 17 gráður í skugganum fyrir norðan húsið
von á fullt af gestum á tjaldsvæðið, vonum bara að hann hagi þur.
Hlakka til að sjá ykkur sem flest
kær kveðja úr Víðidalnum
Sigrún og Villi